Gleðilegt ár
Vonandi sjáumst við eitthvað á þessu ári
» 0 hafa sagt sína skoðun
Smá chekk..
Er einhver svo duglegur að kíkja hér inn??
Á ekki að halda þessari síðu uppi?
Hvað er að frétta af ykkur?
Fullt að gera í barneignum????
Húskaupum???
brúðkaupum???
Skólum???
Vinnum???
Allavega verið nú dugleg!!
» 1 hafa sagt sína skoðun
Ósk og Raggi, Innilegar hamingjuóskir með daginn í dag
Ef þið hafið ekki frétt það enn þá.. Þá eignaðist Svava lítinn strák 8. júní.
Það er búið að bæta link á síðuna hennar hér til hliðar.
Jæja nú reynir á að efna loforðin um partý....
Ætla ekki allir á djammið í Grindó á laugardaginn??
Heitast í fréttum í dag eru eurovision og kosningar, en þar strax á eftir fylgir sú frétt að það sást til frekar óvenjulegrar gæsar í Grindavík í dag. Hún var víst í hópi margra kvenna og var merkt bak og fyrir.
Til Luku með daginn og vonandi hendið þið eins og einni mynd af Gæsinni hér inn
Já ég er að reyna að setja inn myndir en einhverra hluta vegna þá er þetta eithvað voða mikið mál því þetta er ný myndavél og er ég að reyna að setja inn forritið fyrir hana í tölvunna en það gengur eithvað erfiðlega en vonandi kemur þetta fljótlega!+
Já en annars vil ég bara þakka kærlega fyrir síðast og vona svo innlega að allir hafi skemmt sér vel og eigi eftirminnilegt kvöld!
Ég allavegana skemmti mér konunglega !
Svo er bara um að gera vera dugleg að skrifa inn á síðunna hvað er í gangi hjá ykkur t.d hverjir eru að eignast börn flytja frá eða til grindavíkur, gifta sig, og fleirra bara gaman að fylgjast með er það ekki!!!
Vildi bara láta ykkur vita að Guðrún eignaðist litla stelpu í gærmorgun.
Guðrún og fjölskylda innilegar hamingjuóskir með skvísuna!!
Kv. Anna L
» 10 hafa sagt sína skoðun
Nú vil ég hvetja all eins, og Rósa og Sara gerðu í gær, að vera virkir á síðunni!
Það verður gaman að fylgjast með ykkur næstu árinn!
Það var rosalega gaman að sjá ykkur öll í gær og vonandi verður það enn þá skemmtilegra næst!! hehe.
En þeir sem voru með myndavélar eruð þið ekki til í að setja myndir á síðuna??
Kveðja Anna Lilja
» 2 hafa sagt sína skoðun
Þá er loksins komið að þessu. Fermingarafmælið er í kvöld, við Sara erum búnar að leggja hart að okkur og reyndum að gera þetta sem skemmtilegast og líka svolitið eftirminnilegt, svo er það bara undir ykkur komið að koma með góða skapið og skemmta ykkur sem best. Við verðum 28 manns í allt þannig að þetta verður bara stuð. 'Eg hlakka hrikalega til kvöldsins og til þess að hitta ykkur öll og ég vil hvetja ykkur til þess að mæta tímanlega kl 19:30 því mega skvísurnar í móttökunni verða farnar kl 20:00 þannig að ekki missa af þeim en sjáumst í kvöld og góða skemmtunn kveðja Rósa Kristín
og endilega ef þið spilið á eitthvert hjóðfæri þá er um að gera að taka það með og líka en þið lumið á einhverjum skemmtilegum leikjum þá endilega komið þeim á framfæri og svo væru líka geisladiskar með góðri tónlist vel þegnir
» 4 hafa sagt sína skoðun
jæja gott fólk þá er aðeins einn dagur í party ársins og ástæðan fyrir því að eg er alltaf herna inná er það að eg er hrikalega spenntur fyrir að hitta alla og vona það sama se um ykkur hin.þetta verður mergjað allavega þá sjáumst við hress á laugdaginn.
kv
siggi
Já það eru bara 3 dagar í Fermingarafmælið
Er ekki spurning um að telja niður hérna á síðunni þar til að herlegheitunum er komið
Fór í Bónus áðan og er semsagt búin að versla !
Vona svo að Siggi Rúnar og raggi séu byrjaðir að undirbúa súpurnar og brauðið! (ég efast svo sum ekki um það!)
Vill bara enn og aftur minna ykkur bæði á ef þið lumið á einhverjum gömlum bekkjar eða bara einjhverjum myndum af okkur þá meigið þið endilega koma þeim til okkar(Söru, Rósu) Og líka ef þið lumið á einhverju skemmtilegu atriði sem þið viljið koma á framfæri þá bara endilega komið með það með ykkur....
Svo er það bara að drífa sig í ríkið og versla drykkina og byrja að hita upp er það ekki annars
» 15 hafa sagt sína skoðun
Já það eru sko bara 6.dagar til stefnu eru ekki örugglega allir að verða tilbúnir með dressið, drykkina og góða skapið!
Ég og Rósa Kristín erum búnar að skipuleggja vonandi allveg ógleymanlegt kvöld fyrir ykkur og vona ég svo sannarlega að allir eigi eftir að skemmta sér rosa vel!
Það verður dúndur ball á Lukku Láka þetta kvöld svona fyrir þá sem ekki geta eða kunna að fara snemma heim!! En hljómsveitin Vítamín ætlar að halda uppi stuðinu!(ekki það að ég viti hvernig sú hljómsveit sé) En hann Láki kallinn er tilbúinn að gera okkur smá díl í sambandi við verð ef okkur langar að kíkja eftir öll herlegheitin.
Annars er bara allt að verða reddý er það ekki Siggi
Sjáumst svo bara hress og kát á laugardaginn!!
» 6 hafa sagt sína skoðun
Jæja þekkið þið einhverja á þessum myndum???
» 7 hafa sagt sína skoðun